sem ég hafði verslað mér fyrr um daginn... á sunnudeginum kíkti maður á hljómeykisæfingu og fyrir algjöra tilviljun hittum við tóta, telmu og hjaltey á stöðinni... þetta varð til þess að við kíktum heim til mín og horfðum á SPIDERMAN og brot úr hinni ÆÐISLEGU og mögnuðu BATMAN-mynd sem gerð var eftir 60's þáttunum...
annars er maður að fara að vinna í kvöld (eins og öll mánudagskvöld) endilega kíkið við á súfistann, hafnarfirði.. í kvöld troða víst einhverjir sænskir vísnasöngvarar upp... fróðlegt ;)
vignir freyr // 5:47 e.h.
LOKSINS loksins.. laugardagur (til lukku) eftir að hafa tekið því rólega í gærkvöld þá er maður tilbúinn fyrir herlegheit kvöldsins.. KVEÐJU/AFMÆLIS-PARTÝ hjá henni EVU!! jey! :) fyrir þá sem ekki hafa lesið bloggið hennar evu þá er hún að fara í spænskunám til spánar og hennar verður sárt saknað (hún verður alveg þangað til í ÁGÚST!) en jæja já.. powerpuff-þrenningin verður engin þrenning í kvöld þar sem það mun vanta einn liðsmann.. ásgeir verður víst fjarri gamni.. en þó ekki ÖLLU gamni þar sem hann er að gamna sér með verzló-krökkunum í madeinusa einhversstaðar úti á landi.. hans verður sárt saknað í kvöld en þetta þýðir að við palli verðum að vera tvisvar sinnum skemmtilegri en venjulega fyrir hana evu okkar... eníweis.. hannes brósi er komin frá fyrirheitna (hamborgara)-landinu banda(manna)ríkjunum.. skrapp út á land með gerði en kemur aftur á morgun.. heimir brósi er með 18 manna LAN út í bílskúr og sat hann sveittur ásamt vinum sínum við tölvuleikjaspil í nótt.. COUNTERstrike dauðans... gaman að þessu... :) well, ekki meira að frétta að sinni.. nema hvað.. tek undir orð tótu það verður djamm-dauðans.is þann 12.apríl þar sem stefnan verður tekin á árshátíð(ina) tónlistarskóla víðs vegar að af höfuðborgarsvæðinu (þar á meðal tónó HAFNARFIRÐI! ;) ) eitt orð yfir þetta: gaman. :)
Flestir karlar ná stigafjölda á bilinu 0 til 180 og flestar konur 150 til 300. Heilar sem eru karlmiðaðir eru yfirleitt undir 150 stigum. Þeim mun nær núlli sem þeir eru, þeim mun afdráttarlausari karlheilar eru þar á ferðinni og testósterónmagnið að líkindum í meira lagi. Þessir einstaklingar búa yfir góðri rökvísi og skilgreiningarhæfni, eiga auðvelt með að tjá sig með orðum, eru agaðir í betra lagi og vel skipulagðir. Þeim mun nær núllinu þeir eru, þeim mun hæfari eru þeir til að gera kostnaðaráætlanir og spá fyrir um niðurstöður út frá tölfræðilegum athugunum án þess að tilfinningar hafi þar minnstu áhrif.
Niðurstöður sem hljóða upp á mínustölu benda til að heilinn sé ofur karlmiðaður. Það sýnir að mikið magn testósteróns var til staðar á fyrri þróunarstigum fóstursins. Þeim mun lægri sem stigafjöldinn er hjá konu, þeim mun meiri líkur eru á að hún hafi lesbískar tilhneigingar. Heilar sem eru kvenmiðaðir fá yfirleitt meira en 180 stig. Þeim mun hærri sem talan er, þeim mun kvenmiðaðri er heilinn og þeim mun meiri líkur á að einstaklingurinn búi yfir afgerandi sköpunargáfu, listrænum hæfileikum og sé músíkalskur. Þessir aðilar munu oftar en ekki taka ákvarðanir sem byggjast á innsæi eða hvatvísi og eru leiknir við að skilgreina vandamál með lágmarksupplýsingar í höndunum. Þeir eru og náttúraðir til að leysa vandamálin af skapandi innsæi. Þeim mun hærra yfir 180 sem stigagjöfin er hjá karli, þeim mun meiri líkur eru á því að hann sé samkynhneigður. Karlar sem eru neðan við núllið og konur sem eru yfir 300 hafa heila sem starfa með svo ólíkum hætti að þau eiga líkast til ekkert sameiginlegt annað en að búa á sömu plánetunni. Stigagjöf frá 150 til 180 ber vott um sveigjanleika í hugsun hjá báðum kynjum eða fótfestu í herbúðum beggja. Þessir einstaklingar sýna hvorki ákveðnar hneigðir til karlmiðaðrar né kvenmiðaðrar heilastarfsemi og eru venjulega sveigjanlegir í hugsun sem er vitaskuld afbragðs eiginleiki fyrir alla sem þurfa að leysa vandamál. Þeir hafa og tilhneigingu til að vingast bæði við karla og konur.
jæja.. best að maður bloggi smá svo ég fari ekki á aumingjabloggslistann hennar tótu ;) það er sosum ekki mikið að segja núna.. helgin var frekar róleg.. kíkti með rakel beib á kaffibarþjónakeppnina í kringlunni á föstudaginn þar sem við vorum að hvetja súfistastelpurnar okkar þær júlíu og elsu!! :) á föstudagskvöldið var MEGAsukk hjá okkur tótu (eftir að ég var búinn að heilsa uppá rakel í vinnuna og mýu á bónus-vídeó.. :) sukkið stendur fyrir hrikalegu nammi og doritos áti (ekki gleyma guacamole-sósunni-sem-er-svo-skemmtilega-græn-á-litinn) :) jájá.. við semsagt höfðum spólukvöld enda bæði UPPGEFIN eftir annasama viku.. (ég var líka að fara að vinna snemma á laugardeginum.. ) á laugardagskvöldið kíkti ég á made in usa sýningu verzlunarskólans.. þar sem ásgeir var (að mínu mati) aðalstjarna sýningarinnar.. fyrrum samnemendur mínir í tónfræði hanna borg og jón ragnar stóðu sig líka með stakri prýði!! :) :) :) kíkti á háskólakynninguna á sunnudaginn og þegar við rakel, eleonora og fríða erum að ganga aftur að bílnum þá dregst fríða smá aftur úr.. allt í einu heyrir maður hana segja: ,,djöfullinn!" þá hafði hún fest hælinn á skónum í holu á veginum.. og viti menn! HÆLLINN DATT AF!! ég ætlaði bara ekki að hætta að hlæja!! hélt að þetta gerðist bara í amerískum bíómyndum!! :) (fríða mín.. vona að þú sért ekki að lesa þetta :) :) :) ) svo var hljómeykisæfing um kvöldið og við tóta fáum bara ekki nóg af sukki svo við leigðum spólu.. AFTUR! ;) mánudagurinn var svo bara skóli og vinna.. ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!! en vá.. hannes brósi kemur frá USA eftir u.þ.b. eina og hálfa viku!! og sir eyfi kemur víst þann 1.apríl!!
ég vil bara nota tækifærið og þakka tótubeibdauðans, palla blöku og rakel eddu söngdívu fyrir gærkvöldið.. leitt að fríða, eleonora og eydís gátu ekki séð sér fært um að mæta á svæðið.. fyrir þá sem ekki vita þá vorum við með EVIL DEAD maraþon þar sem horft var á þessa mögnuðu trílógíu (næstum) non-stop! byrjuðum seinna en við ætluðum okkur og þrátt fyrir smá tæknilega örðugleika þá kláruðum við maraþonið FYRIR áætlaðan tíma (kláruðum 1:40 en áætlað var að maraþonið myndi standa til 2:00). Fyrir þá sem ekki vita þá er leikstjórn þessara stórmerkilegu cult-mynda í höndum ekki ómerkari manns en Sam Raimi sem leikstýrði síðast SPIDERMAN og þar áður The Gift.. og já meðan ég man.. til hamingju með nýja útlitið á blogginu þínu tóta!